Fotbolti.net
15.10.26 - 10:05
Elvar Geir Magnússon

Bo Johansson er látinn

Bo var í einkaviðtali við Þorgrím Þráinsson hjá Íþróttablaðinu í október 1991.

Bo var í einkaviðtali við Þorgrím Þráinsson hjá Íþróttablaðinu í október 1991.

Canon

Mynd: tímarit.is

Bo Johansson, fyrrum landsliðsþjálfari Íslands, er látinn 83 ára að aldri. Svíinn átti langan þjálfaraferil og gerði Öster í tvígang að sænskum meistara, 1980 og 1981.

Bosse, eins og hann var kallaður, var landsliðsþjálfari Íslands 1990-1991. Síðasti leikur hans sem með Ísland var gegn Dönum í byrjun september árið 1991.

Í viðtali við Íþróttablaðið sagði hann að KSÍ hefði tjáð sér að sambandið vildi ráða ódýrari þjálfara og því ekki boðið honum nýjan samning. Hann hafi ákveðið að hætta áður en undankeppninni lauk til að leita sér að nýju starfi.
Hann stýrði kjölfarið félagsliðum á norðurlöndum og gerði Silkeborg að dönskum meistara 1994.

Hann tók við danska landsliðinu 1996 og stýrði því á HM 1998 þar sem liðið komst í 8-liða úrslit og þótti spila mjög skemmtilegan fótbolta.

Hans síðasti titill á ferlinum kom 2005 þegar hann gerði Molde að bikarmeistara í Noregi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.