Fotbolti.net
15.10.26 - 08:30
Brynjar Ingi Erluson

Haaland sló met Aguero

Haaland er kominn með 38 Meistaradeildarmörk fyrir Man City

Haaland er kominn með 38 Meistaradeildarmörk fyrir Man City

Canon

Mynd: EPA

Erling Braut Haaland er orðinn markahæsti leikmaður Manchester City í sögu Meistaradeildar Evrópu eftir að hafa skorað tvö mörk gegn Paris Saint-Germain í gær.
Meistaradeildin: Meistararnir frábærir gegn Man City - Dramatísk endurkoma Madrídinga
TENGT EFNI

Meistaradeildin: Meistararnir frábærir gegn Man City - Dramatísk endurkoma Madrídinga

Norðmaðurinn skoraði bæði mörk Man City í síðari hálfleiknum í 4-2 tapinu gegn PSG og bætti um leið félagsmet.

Haaland hefur nú skorað 61 mark í Meistaradeildinni, þar af 38 fyrir Man City, og er orðinn markahæsti leikmaður félagsins í sögu keppninnar.

Hann tók þar með fram úr Argentínumanninum Sergio Aguero sem skoraði 36 mörk í 64 leikjum fyrir City, en Haaland hefur aðeins þurft 41 leik til að skora sín 38 mörk.

Um leið varð hann fljótasti leikmaðurinn í sögu Meistaradeildarinnar til að ná 60 mörkum, en það tók hann aðeins 60 leiki.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.