Fotbolti.net
15.10.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson

Sambandsdeildin í dag - Margir Íslendingar í eldlínunni

Viktor Bjarki verður í liði FCK

Viktor Bjarki verður í liði FCK

Canon

Mynd: EPA

Deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu hefst með heillri umferð í dag og kvöld.
Fjölmargir Íslendingar verða í eldlínunni í keppninni í dag. Þeir Daníel Leó Grétarsson, Mikael Neville Anderson og Tómas Óli Kristjánsson eru allir á mála hjá AGF sem heimsækir Gent klukkan 16:45.

Elías Rafn Ólafsson verður í marki Midtjylland gegn Egnatia en klukkan 19:00 spilar FCK gegn Braga. Þeir Viktor Bjarki Daðason, Rúnar Alex Rúnarsson og Gunnar Orri Olsen eru allir á mála hjá danska félaginu.

Á sama tíma mætir Hearts liði Nordsjælland en Tómas Bent Magnússon er á mála hjá skoska félaginu. Þeir Alexander Rafn Pálmason og Daniel Ingi Jóhannesson eru hins vegar hjá Nordsjælland, en Daníel er þessa stundina á láni hjá Kolding.

Kristian Nökkvi Hlynsson og félagar í Twente mæta Thun en Brann spilar gegn Lincoln. Þeir Kristall Máni Ingason, Eggert Aron Guðmundsson og Sævar Atli Magnússon eru allir á mála hjá norska félaginu.

Enska úrvalsdeildarfélagið Brighton tekur þá á móti Kauno Zalgiris frá Litháen á Amex-leikvanginum á meðan Mohamed Salah og félagar í Trabzonspor mæta KuPS frá Finnlandi.

Leikir dagsins:
16:45 CSKA Sofia - Mónakó
16:45 Lugano - Rauða stjarnan
16:45 Hajduk Split - Ajax
16:45 Gent - AGF Aarhus
16:45 Egnatia R - Midtjylland
16:45 KuPS - Trabzonspor
16:45 Mjallby - Inter Escaldes
16:45 Panathinaikos - Borac BL
16:45 Riga - Kairat
16:45 Universitatea Craiova - Getafe
19:00 Atalanta - Pafos FC
19:00 Brighton - Kauno Zalgiris
19:00 FCK - Braga
19:00 Twente - Thun
19:00 Hearts - FC Nordsjaelland
19:00 Freiburg - Jablonec
19:00 SK Brann - Lincoln
19:00 Sint-Truiden - Iberia 1999
Elías Rafn stendur á milli stanganna hjá Midtjylland

Elías Rafn stendur á milli stanganna hjá Midtjylland

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.