Fotbolti.net
15.12.23 - 20:58
Brynjar Ingi Erluson

Hjálmar kveður Gautaborg eftir 21 ár

Hjálmar Jónsson er farinn frá Gautaborg

Hjálmar Jónsson er farinn frá Gautaborg

Canon

Mynd: Getty Images

Gautaborgar-goðsögnin Hjálmar Jónsson hefur yfirgefið félagið eftir 21 í starfi, bæði sem leikmaður og þjálfari.
Hjálmar var keyptur til félagsins frá Keflavík árið 2002 og spilaði með því alveg til 2016.

Á fjórtán ára ferli sínum hjá Gautaborg vann hann deildina tvisvar sinnum, sem leikmaður og þjálfari, auk þess sem hann vann bikarinn þrisvar.

Eftir að hann lagði skóna á hilluna var honum boðin þjálfarastaða innan félagsins sem hann samþykkti.

Hjálmar hefur komið að þjálfun U19 ára liðsins ásamt því að vera í kringum aðalliðið, en hann hefur nú ákveðið að leita á önnur mið eftir 21 ár í starfi.

„Ég vil þakka öllum hjá félaginu kærlega fyrir öll þessi ár,“ sagði Hjálmar við Blåvitt+.

Sem leikmaður spilaði hann 429 leiki fyrir Gautaborg og lék þá 21 landsleik fyrir íslenska landsliðið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.