Fotbolti.net
19.11.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Úr Kórnum til Grindavíkur (Staðfest)

Úr Kórnum til Grindavíkur (Staðfest)
Canon

Mynd: Grindavík

Breki Ottósson er genginn til liðs við Grindavíkur frá HK. Hann skrifar undir samning út tímabilið 2028.

Breki er sóknarmaður fæddur árið 2007 og er uppalinn hjá HK. Hann spilaði 19 leiki með Ými í 3. deild síðasta sumar og skoraði 11 mörk. Hann hefur alls skorað 20 mörk í 39 leikjum í meistaraflokki.
Hann mun taka slaginn með Grindavík í 2. deild næsta sumar en liðið féll úr Lengjudeildinni síðasta sumar.

Breki á einn landsleik að baki fyrir U18 landslið Íslands.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.