Lið vikunnar í enska - 18 ára á miðjunni

Simon Mignolet (Liverpool) - Varði nokkrum sinnum vel gegn Manchester United.

Mynd: Getty Images

Kyle Walker (Tottenham) - Frábær í sigri Tottenham á WBA. Kominn með flestar stoðsendingar af öllum varnarmönnum í vetur.

Mynd: Getty Images

Toby Alderweireld (Tottenham) - Hjálpaði Spurs að halda hreinu gegn WBA.

Mynd: Getty Images

Dejan Lovren (Liverpool) - Var öflugur í 1-1 jafnteflinu gegn Manchester United.

Mynd: Getty Images

Marcos Alonso (Chelsea) - Skoraði óvænt tvíegis í sigrinum á Leicester.

Mynd: Getty Images

Pedro (Chelsea) - Diego Costa var ekki með gegn Leicester en Pedro steig upp og átti frábæran leik.

Mynd: Getty Images

Tom Davies (Everton) - 18 ára miðjumaður sem var maður leiksins gegn Manchester City. Kórónaði frammistöðuna með marki.

Mynd: Getty Images

Christian Eriksen (Tottenham) - Var í miklu stuði gegn WBA.

Mynd: Getty Images

Marko Arnautovic (Stoke) - Skoraði tvö mörk í öruggum útisigri á Sunderland.

Mynd: Getty Images

Harry Kane (Tottenham) - Henti í þrennu á laugardaginn.

Mynd: Getty Images

Andy Carroll (West Ham) - Skoraði glæsilegasta mark helgarinnar.

Mynd: Getty Images





