Fotbolti.net
07.07.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Gatorade

Mætast í fyrsta sinn í sögunni - Styrktarleikur fyrir Helgu Guðmundsdóttur

Mætast í fyrsta sinn í sögunni - Styrktarleikur fyrir Helgu Guðmundsdóttur
Canon

Mynd: Facebook

Selfoss og Árborg munu mætast í opinberum leik í fyrsta sinn í sögunni er liðin eigast við í 16-liða úrslitum Gatorade bikars Fótbolta.net á morgun.
Félögin hafa átt í áralöngu og farsælu samstarfi, en fjöldi leikmanna hafa spilað með báðum félögum.

Leikurinn verður einnig styrktarleikur fyrir Helgu Guðmundsdóttur en hún háir nú baráttu við illvígt krabbamein. Að ósk Helgu mun allur ágóði af leiknum renna óskertur til heimahjúkrunar Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi. Það er þjónusta sem Helga hefur þurft að nýta sér í sínum veikindum og vill hún leggja sitt af mörkum til þess að styðja við þetta mikilvæga starf sem hefur reynst henni svo vel. Helga er móðir Arons Fannars Birgissonar, leikmanns Selfoss, og fyrrum leikmanns Árborgar.

Miðasala fyrir viðburðinn fer fram á STUBB en allir sem versla sinn miða í gegnum STUBB fyrir miðvikudag fara í pott og eiga möguleika á að vinna Selfoss eða Árborgar treyju.

„Lágmarksmiðaverð er 2000 krónur en í boði er að greiða hærri upphæð fyrir miðann og hvetjum við þau sem eru aflögufær að gera það,“ segja Selfyssingar á viðburðinum á Facebook.

Hægt er að kaupa miða á Stubb hér
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.