Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 16. janúar 2021 21:59
Ívan Guðjón Baldursson
England: Leicester einu stigi frá toppnum
Mynd: Getty Images
Leicester 2 - 0 Southampton
1-0 James Maddison ('37)
2-0 Harvey Barnes ('95)

Leicester City og Southampton áttust við í hörkuslag í ensku úrvalsdeildinni. Liðin mættust í síðasta leik kvöldsins og úr varð afar spennandi viðureign.

Heimamenn í Leicester voru með yfirhöndina og tóku forystuna undir lok fyrri hálfleiks, þegar James Maddison skoraði frábært mark.

Gestirnir frá Southampton gerðu sig oft hættulega og komust nokkrum sinnum nálægt því að jafna en inn vildi boltinn ekki. Heimamenn í Leicester komust einnig nálægt því að tvöfalda forystuna en skoruðu ekki fyrr en undir lok uppbótartímans.

Leikmenn Southampton voru allir í sókn og nýtti Harvey Barnes sér það til hins ýtrasta. Hann hljóp upp hálfan völlinn og innsiglaði sigurinn.

Leicester er komið í 2. sæti deildarinnar, einu stigi eftir Manchester United sem á leik til góða gegn Liverpool á morgun. Southampton er í áttunda sæti, sex stigum fyrir neðan Leicester.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner