Fotbolti.net
16.01.23 - 18:30
Ívan Guðjón Baldursson

Dortmund vill fá Elanga á lánssamningi

Dortmund vill fá Elanga á lánssamningi
Canon

Mynd: EPA

Manchester United er að skoða að lána sænska framherjann Anthony Elanga, sem er vinstri kantmaður að upplagi, frá sér út tímabilið.

Everton sýndi Elanga fyrst áhuga og vill fá þennan efnilega leikmann á lánssamningi með kaupmöguleika. Núna hefur þýska stórveldið Borussia Dortmund bæst við kapphlaupið.

Dortmund er heimsfrægt fyrir að treysta mikið á unga og efnilega leikmenn - sem nota svo félagið oftar en ekki sem stökkpall til að koma sér á framfæri og fá betra samningstilboð frá stórliði. Það hjálpar félaginu oft að krækja í efnilega leikmenn því þeir vita að hjá Dortmund munu þeir fá tækifæri með aðalliðinu.

Samkvæmt Fabrizio Romano vill Elanga frekar vilja skipta yfir til Dortmund á lánssamningi, en það er Man Utd sem á lokaorðið.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.