Frimpong orðaður við Liverpool - City reynir við Reijnders - Man Utd ætlar ekki að losa sig við Amorim
   mán 16. janúar 2023 14:30
Elvar Geir Magnússon
Moyes um stöðu sína: Ég er ekki heimskur, þetta er úrslitabransi
West Ham tapaði fyrir Úlfunum á laugardaginn en Hamrarnir eru í fallsæti í ensku úrvalsdeildinni. David Moyes, stjóri West Ham, var spurður út í sína stöðu eftir leikinn.

„Ég er ekki heimskur. Í þessum bransa þarftu að vinna leiki og ég hef ekki unnið nægilega marga," sagði Moyes.

West Ham hefur fengið eitt stig úr sjö leikjum og er núna í fallsæti þrátt fyrir að hafa eytt 160 milljónum punda á leikmannamarkaðnum síðasta sumar.

Það virðist ekki benda til annars en að Moyes verði við stjórnvölinn þegar hans gamla félag Everton heimsækir London leikvanginn komandi laugardag.

En ljóst er að þolinmæðin varir ekki að eilífu og erfitt er að sjá að Moyes geti haldið starfi sínu ef West Ham tapar þeim leik. Everton er einnig í fallsæti og staða Frank Lampard í umræðunni.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Liverpool 36 25 8 3 83 37 +46 83
2 Arsenal 36 18 14 4 66 33 +33 68
3 Newcastle 36 20 6 10 68 45 +23 66
4 Man City 36 19 8 9 67 43 +24 65
5 Chelsea 36 18 9 9 62 43 +19 63
6 Aston Villa 36 18 9 9 56 49 +7 63
7 Nott. Forest 36 18 8 10 56 44 +12 62
8 Brentford 36 16 7 13 63 53 +10 55
9 Brighton 36 14 13 9 59 56 +3 55
10 Bournemouth 36 14 11 11 55 43 +12 53
11 Fulham 36 14 9 13 51 50 +1 51
12 Crystal Palace 36 12 13 11 46 48 -2 49
13 Everton 36 9 15 12 39 44 -5 42
14 Wolves 36 12 5 19 51 64 -13 41
15 West Ham 36 10 10 16 42 59 -17 40
16 Man Utd 36 10 9 17 42 53 -11 39
17 Tottenham 36 11 5 20 63 59 +4 38
18 Ipswich Town 36 4 10 22 35 77 -42 22
19 Leicester 36 5 7 24 31 78 -47 22
20 Southampton 36 2 6 28 25 82 -57 12
Athugasemdir
banner