Inter og Juve vilja Alisson - Man Utd vill annan Bruno - Liverpool og Arsenal fylgjast með Bastoni
   fös 16. janúar 2026 09:00
Elvar Geir Magnússon
Sjö leikmenn mættu á skrifstofuna til Perez og kvörtuðu yfir Alonso
Alonso var rekinn í byrjun vikunnar.
Alonso var rekinn í byrjun vikunnar.
Mynd: EPA
Mbappe verður ekki með gegn Levante.
Mbappe verður ekki með gegn Levante.
Mynd: EPA
Xabi Alonso var rekinn frá Real Madrid í byrjun vikunnar en ein af ástæðunum fyrir því var slæmt samband hans við nokkrar af stærstu stjörnum liðsins.

Mikið var fjallað um eldfimt samband hans og brasilíska sóknarmannsins Vinicius Junior. Hann kenndi nýja stjóranum um að vera ekki að ná fram sínu besta og mótmælti þegar hann var tekinn af velli í El Clasico. Brasilíumaðurinn bað síðan alla afsökunar, nema Alonso.

Cadena SER segir nú að sjö leikmenn liðsins hafi mætt á skrifstofu Florentino Perez, forseta félagsins, til að kvarta yfir Alonso. Sagt er að Alonso og hans þjálfarateymi hafi vitað það frá því í nóvember að hluti leikmanna væru að gagnrýna hann fyrir framan stjórnendur félagsins.

Mbappe ekki með á morgun
Alvaro Arbeloa er nú tekinn við Madrídarliðinu en átti hörmulega byrjun í starfi. Real tapaði gegn B-deildarliði í bikarnum í vikunni. Þetta var annar titillinn sem flýgur frá Madrídarliðinu á aðeins fjórum dögum.

Arbeloa vonast til að koma Real Madrid á sigurbraut á heimavelli gegn Levante í La Liga á morgun. Kylian Mbappe verður ekki með í leiknum þar sem hann er ekki fullkomlega búinn að jafna sig af hnémeiðslum og engin áhætta verður tekin með hann.

Real Madrid er í öðru sæti í La Liga, fjórum stigum frá Barcelona sem trónir á toppnum.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 26 21 1 4 71 26 +45 64
2 Real Madrid 26 19 3 4 54 22 +32 60
3 Atletico Madrid 26 15 6 5 43 23 +20 51
4 Villarreal 26 16 3 7 48 31 +17 51
5 Betis 26 11 10 5 42 32 +10 43
6 Celta 26 10 10 6 36 28 +8 40
7 Espanyol 26 10 6 10 33 39 -6 36
8 Real Sociedad 26 9 8 9 38 38 0 35
9 Athletic 26 10 5 11 30 36 -6 35
10 Osasuna 26 9 6 11 30 30 0 33
11 Getafe 26 9 5 12 21 29 -8 32
12 Sevilla 26 8 6 12 34 41 -7 30
13 Girona 26 7 9 10 27 42 -15 30
14 Valencia 26 7 8 11 27 39 -12 29
15 Vallecano 25 6 9 10 23 32 -9 27
16 Alaves 26 7 6 13 23 34 -11 27
17 Elche 26 5 11 10 34 39 -5 26
18 Mallorca 26 6 6 14 29 42 -13 24
19 Levante 26 5 6 15 28 44 -16 21
20 Oviedo 25 3 8 14 16 40 -24 17
Athugasemdir
banner
banner