Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   sun 16. febrúar 2020 16:02
Brynjar Ingi Erluson
England: Son nýtti sér slæm mistök Engels í sigri á Aston Villa
Heung-Min Son skoraði fyrir Tottenham
Heung-Min Son skoraði fyrir Tottenham
Mynd: Getty Images
Björn Engels gaf víti og gerði svo slæm mistök í uppbótartíma
Björn Engels gaf víti og gerði svo slæm mistök í uppbótartíma
Mynd: Getty Images
Aston Villa 2 - 3 Tottenham
1-0 Toby Alderweireld ('9 , sjálfsmark)
1-1 Toby Alderweireld ('27 )
1-2 Son Heung-Min ('45 )
2-2 Bjorn Engels ('53 )
2-3 Son Heung-Min ('90 )

Tottenham vann Aston Villa 3-2 í hádramatískum leik í 26. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Heung-Min Son var hetjan en Björn Engels skúrkurinn.

Villa komst yfir á 9. mínútu leiksins er Anwar El Ghazi átti fyrirgjöf sem Alderweireld stýrði í eigið net. Jack Grealish var afar líflegur í sóknarleik Aston Villa og var að skapa alls konar vandræði fyrir vörn Tottenham.

Á 27. mínútu náði Alderweireld hins vegar að bæta upp fyrir mistökin og jafna leikinn. Hann fékk boltann í teignum eftir hornspyrnu og þrumaði honum í netið. Óverjandi fyrir Pepe Reina.

Undir lok fyrri hálfleiks fékk Tottenham vítaspyrnu eftir að Björn Engels braut á Steven Bergwijn innan teigs. Heung-Min Son tók spyrnuna en Reina varði. Boltinn barst þó aftur til Son sem skoraði.

Engels bætti upp fyrir brotið í vítinu og jafnaði leikinn á 53. mínútu eftir hornspyrnu Grealish. Villa var nálægt því að komast aftur yfir á 65. mínútu er Grealish átti hornspyrnu sem Engels fleytti áfram á El Ghazi en Hugo Lloris varði.

Pepe Reina og Grealish voru báðir magnaðir í leiknum. Reina varði vel á köflum og Grealish ógnandi í sóknarleiknum. Það var því svekkjandi fyrir liðið er Son skoraði sigurmark Tottenham á síðustu sekúndum leiksins.

Engels gerði slæm mistök sem Son nýtti sér. Son keyrði í átt að markinu og skoraði örugglega. Svekkjandi fyrir Villa en lokatölur 3-2 fyrir Tottenham.

Liðið er í 5. sæti með 40 stig á meðan Villa er í 17. sæti með 25 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner