Newcastle vill kaupa Elanga - Memphis til Corinthians - Barca ætlar að fá Nico Williams - Casemiro og Eriksen mega fara - Kovacic íhugar framtíð sína...
   fös 16. febrúar 2024 21:36
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Þróttur skellti Val á meðan Víkingur sigraði
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttur R. tók á móti Val í Laugardalnum í kvöld og tók forystuna á 34. mínútu þegar Kári Kristjánsson kom boltanum í netið.

Heimamenn leiddu í leikhlé og tvöfaldaði Sigurður Steinar Björnsson forystuna snemma í síðari hálfleik.

Arnar Grétarsson gerði skiptingu í hálfleik og þrjár skiptingar eftir að Sigurður Steinar tvöfaldaði forystu heimamanna, en þær skiluðu sér ekki með marki. Lokatölur leiksins urðu 2-0 og batt Þróttur þannig enda á sigurhrinu Valsara sem höfðu unnið fyrstu tvo leikina sína.

Þróttarar eru með þrjú stig eftir tap gegn ÍR í fyrstu umferð.

Víkingur R. lagði þá Aftureldingu að velli og er með fjögur stig eftir jafntefli við Leikni R. í fyrstu umferð.

Helgi Guðjónsson skoraði fyrsta mark leiksins snemma og leiddu Víkingar 1-0 í hálfleik. Nikolaj Hansen lét til sín taka í síðari hálfleik og skoraði tvennu á þriggja mínútna kafla til að gera út um viðureignina.

Valdimar Þór Ingimundarson skoraði fjórða mark heimamanna á Víkingsvelli áður en Elmar Kári Cogic minnkaði muninn með fánamarki fyrir Aftureldingu.

Lokatölur 4-1 og er Afturelding með þrjú stig eftir þrjár umferðir.

Þróttur R. 2 - 0 Valur
1-0 Kári Kristjánsson ('34 )
2-0 Sigurður Steinar Björnsson ('57 )

Víkingur R. 4 - 1 Afturelding
1-0 Helgi Guðjónsson ('15 )
2-0 Nikolaj Andreas Hansen ('58 )
3-0 Nikolaj Andreas Hansen ('60 )
4-0 Valdimar Þór Ingimundarson ('68 )
4-1 Elmar Kári Enesson Cogic ('74 )
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner