Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fim 16. mars 2023 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stjórnarformaðurinn ósáttur og íhugar að skipta Vieira út
Patrick Vieira.
Patrick Vieira.
Mynd: EPA
Framtíð Patrick Vieira hjá Crystal Palace er í skoðun en liðinu hefur ekki tekist að vinna einn einasta fótboltaleik eftir að árið 2023 gekk í garð.

Ed Aaron, fréttamaður á Guardian, segir að sæti Vieira sé orðið frekar heitt.

Steve Parish, stjórnarformaður Palace, er ósáttur við gengið upp á síðkastið og er að íhuga að skipta út Vieira.

Vieira er fyrrum fyrirliði Arsenal en hann tók við starfi stjóra Crystal Palace fyrir síðustu leiktíð. Það gekk ágætlega á fyrsta tímabili hans við stjórnvölinn en upp á síðkastið hefur hallað undan fæti og er Palace aðeins þremur stigum frá fallsæti.

Liðið spilaði við erkifjendur sína í Brighton í gær og þurfti þar að sætta sig við 1-0 tap.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner