16.03.25 - 16:59
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Bologna í stuði í fjórða sigrinum í röð - Dovbyk tryggði Roma stigin þrjú

Bologna er á skriði

Mynd: EPA

Bologna er á skriði

Mynd: EPA
Bologna er á miklu skriði en liðið vann fjórða leik sinn í Seríu A á Ítalíu í dag er það sundurspilaði Lazio í 5-0 stórsigri á heimavelli. Úkraínumaðurinn Artem Dovbyk var þá hetja Roma sem vann nauman 1-0 sigur á Cagliari.
Jens Odgaard kom Bologna á bragðið á 16. mínútu sem reyndist eina mark fyrri hálfleiksins. Lazio átti á meðan ekki eitt einasta skot á markið og var kannski von á því að liðið kæmi sterkara til leiks í þeim síðari en það varð ekki raunin.
Riccardo Orsolini og Dan Ndoye skoruðu tvö mörk á mínútu og þá gerðu þeir Santiago Castro og Giovanni Fabbian út um leikinn með tveimur mörkum á lokakaflanum.
Bologna kom sér upp í 4. sæti deildarinnar sigrinum á meðan Lazio datt niður í 6. sæti.
Artem Dovbyk skoraði þá sigurmark Roma sem vann Cagliari með einu marki gegn engu.
Boltinn datt fyrir Úkraínumanninn í teignum eftir hornspyrnu sem sneri þá baki í markið, en hann var fljótur að bregðast við og tókst að skora með fínu skoti.
Evrópubarátta Roma lifr enn góðu lífi en liðið er í 7. sæti með 49 stig, fjórum stigum frá Meistaradeildarsæti.
Bologna 5 - 0 Lazio
1-0 Jens Odgaard ('16 )
2-0 Riccardo Orsolini ('48 )
3-0 Dan Ndoye ('49 )
4-0 Santiago Castro ('74 )
5-0 Giovanni Fabbian ('84 )
Roma 1 - 0 Cagliari
1-0 Artem Dovbyk ('62 )

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Roma | 2 | +8 | 6 |
| 2 | Inter | 2 | +4 | 6 |
| 3 | Milan | 2 | +3 | 6 |
| 4 | Juventus | 2 | +3 | 6 |
| 5 | Atalanta | 2 | +2 | 6 |
| 6 | Lazio | 2 | +2 | 6 |
| 7 | Udinese | 2 | +1 | 4 |
| 8 | Como | 2 | +1 | 4 |
| 9 | Frosinone | 2 | +2 | 3 |
| 10 | Napoli | 2 | +1 | 3 |
| 11 | Sassuolo | 2 | 0 | 3 |
| 12 | Cagliari | 2 | 0 | 3 |
| 13 | Lecce | 2 | -2 | 3 |
| 14 | Torino | 2 | -2 | 0 |
| 15 | Bologna | 2 | -2 | 0 |
| 16 | Genoa | 2 | -3 | 0 |
| 17 | Parma | 2 | -3 | 0 |
| 18 | Monza | 2 | -4 | 0 |
| 19 | Venezia | 2 | -4 | 0 |
| 20 | Fiorentina | 2 | -7 | 0 |