Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
Kennie: Líður eins og ég sé 25 ára
Ólafur Ingi: Þurfum að vinna í andlega þættinum
Rúnar Kristins: Búnir að vinna í þessu í tvö og hálft ár
Svekktur fyrirliði Vals: Vorum ekki nógu góðar til að verðskulda sigur
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Böddi: Hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning
Skoraði sigurmarkið og grínaðist með samherjann - „Rósey hendir einhverju góðu á hana“
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
Mattías Kjeld: Valur gat ekki lofað mér mínútum
Nenad: Búið að vera töfrasirkús
Jóhann Birnir: Eitthvað kæruleysi hjá öllum
„Þá er ég ekki það grænn og vitlaus að ég get alltaf hrósað okkur fyrir frábært spil og ægilega óheppnir"
Borja: Allt of dýrt að fá á sig mörk úr föstum leikatriðum
Gunnar Heiðar: Þetta er erfiðasta fæðing sem ég hef séð
   fim 16. apríl 2026 20:38
Snæbjört Pálsdóttir
Cecilía Rán: Vorum nálægt því að skora á móti þeim síðast
Eimskip
Cecilía Rán hefði verið til í fleiri mörk og hafa Úkraínu leikinn minna spennandi í lokin
Cecilía Rán hefði verið til í fleiri mörk og hafa Úkraínu leikinn minna spennandi í lokin
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Cecilía segir lykilatriði að halda betur í boltann gegn Englandi.
Cecilía segir lykilatriði að halda betur í boltann gegn Englandi.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Íslenska kvennalandsliðið tók þrjú stig gegn Úkraínu en landsliðsmarkvörðurinn Cecilía Rán Rúnarsdóttir segir að liðið hafi getað gert leikinn þægilegri fyrir sig. Nú er fókusinn hins vegar kominn á stórleik gegn Englandi á laugardaginn.

„Hefðum náttúrlega viljað skora fleiri mörk, gera leikinn kannski aðeins minna spennandi í lokin. Þetta var kannski óþarfa stress þarna síðustu mínúturnar. Það sem skiptir máli eru þrjú stigin og héldum hreinu sem er alltaf skemmtilegt.“

„Þær voru að keppa á Wembley þar sem er ótrúleg aðstaða. Það verður örugglega erfitt fyrir þær að koma hingað en við erum tilbúnar í allt.“


Fyrir leikinn gegn Englandi segir hún lykilatriði að halda skipulagi og nýta færi vel.

„Einfalt að segja að við verðum að halda markinu hreinu. Reyna að nýta föstu leikatriðin og löngu innköstin í að refsa þeim, skora.“

Hún bendir á að liðið hafi þegar sýnt að það geti skapað hættu.

„Við vorum nálægt því að skora á móti þeim síðast og vonandi kemur það bara á laugardaginn.“

Að hennar mati verður mikilvægt að halda betur í boltann.

„Það verður mikilvægt fyrir okkur að þegar við fáum boltann að halda í hann og ná að stjórna smá leiknum, svo við séum ekki hlaupandi endalaust.“

Að lokum leggur hún áherslu á mikilvægi stuðningsins.

„Það gefur okkur svo ótrúlega mikið. Það er alltaf talað um 12. manninn og það er bara rétt og gefur okkur ótrúlega mikið.“

„Þetta verður bara hörkuleikur þannig ég bara hvet fólk til að mæta."


Slapp
banner
banner
banner