Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
Kennie: Líður eins og ég sé 25 ára
Ólafur Ingi: Þurfum að vinna í andlega þættinum
Rúnar Kristins: Búnir að vinna í þessu í tvö og hálft ár
Svekktur fyrirliði Vals: Vorum ekki nógu góðar til að verðskulda sigur
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Böddi: Hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning
Skoraði sigurmarkið og grínaðist með samherjann - „Rósey hendir einhverju góðu á hana“
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
Mattías Kjeld: Valur gat ekki lofað mér mínútum
Nenad: Búið að vera töfrasirkús
Jóhann Birnir: Eitthvað kæruleysi hjá öllum
„Þá er ég ekki það grænn og vitlaus að ég get alltaf hrósað okkur fyrir frábært spil og ægilega óheppnir"
Borja: Allt of dýrt að fá á sig mörk úr föstum leikatriðum
Gunnar Heiðar: Þetta er erfiðasta fæðing sem ég hef séð
   fim 16. apríl 2026 19:34
Snæbjört Pálsdóttir
Emilía Kiær: Að við höfum ekki unnið stærra
Eimskip
Emilía Kiær segir Ísland hafa getað fengið meira út úr leiknum gegn Úkraínu.
Emilía Kiær segir Ísland hafa getað fengið meira út úr leiknum gegn Úkraínu.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Stórleikur gegn Englandi er næstur hjá íslenska liðinu.
Stórleikur gegn Englandi er næstur hjá íslenska liðinu.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland tók þrjú stig gegn Úkraínu í 1-0 leik á Laugardalsvelli en Emilía Kiær segir að liðið hafi getað fengið meira út úr leiknum. Nú tekur hins vegar við allt annað verkefni, stórleikur gegn Englandi á laugardaginn.

„Fyrst og fremst ánægðar með að fá þessi þrjú stig. Það var markmiðið okkar“


Hún viðurkennir þó að liðið hafi viljað meira út úr leiknum.

„Að við höfum ekki unnið stærra er kannski smá svona, við höfðum vonast til þess.“

Emilía segir sóknarleikinn gefa tilefni til bjartsýni.

„Að við getum skapað þessi færi, það er klárlega eitthvað sem við getum tekið áfram. Við getum bæði staðið mjög vel í vörn hátt á vellinum og lágt á vellinum.“

Hún bendir þó á að leikurinn gegn Englandi verði allt annars eðlis.

„Þetta eru allt öðruvísi leikir og það sem við getum tekið frá Úkraínuleiknum verður ekki alveg það sama og í Englandsleiknum.“

Föstu leikatriðin gætu reynst lykilatriði í komandi leikjum.

„Við erum mjög hættulegar í föstum leikatriðum. þannig bara að halda fókus á því og halda áfram að gera vel þar og gert betur.“

Að lokum kallar hún eftir stuðningi úr stúkunni.

„Bara mæta á laugardaginn, það verður geggjuð stemning og geggjaður leikur.“

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan


Slapp
banner