Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
Davíð Smári: Það lítur ekki vel út fyrir Jóhann
Gunnar Heiðar: Helvíti langur tími fyrir fótboltaþjálfara
Jóhann Birnir svekktur: Mér fannst þetta ekki vera aukaspyrna
Fannst ekki ganga nógu vel að koma mönnum niður á jörðina eftir leikinn gegn FH
Brynjar Björn: Stór og sterkur og það er eitthvað sem vantaði
Venni: Æðislegt að hann taki þátt í þessu með okkur
Hallgrímur Mar: Loksins kominn í eitthvað stand
Hallgrímur Jónasar: Það býr meira í KA liðinu
Jói Kalli: Stuðningsmenn FH hafa allan rétt á sinni skoðun
Aron Sig: Væri högg fyrir hvert einasta lið
Talar um verðskuldaðan sigur: Hægt að vinna fótboltaleiki á fleiri vegu
Rúnar: Dálítið leiðinlegt að vera svona smámunasamur
Hemmi alsæll eftir dísætan sigur - „Ótrúlega fallegt að sjá þetta inni“
Óskar Hrafn: Partíin voru annars staðar
Ólafur Ingi neitar að tjá sig um mögulegt víti Blika
Haraldur Freyr: Flestir komast upp með mikið á móti honum
Fluttur til Keflavíkur og heldur sér uppteknum með fótboltanum
Jökull: Það eina sem ég hef áhyggjur af
Linta: Hötum að tapa en sýndum samt karakter
Viktor Jóns: Erfitt að verja svona
   fim 16. apríl 2026 20:03
Snæbjört Pálsdóttir
Hildur Antons: Við þurfum að vera leiðinlegar
Eimskip
Hildur Antons segir Ísland þurfa að vera leiðinlegra gegn Englandi.
Hildur Antons segir Ísland þurfa að vera leiðinlegra gegn Englandi.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Hildur vill sjá fleiri mæta á Laugardalsvöllinn.
Hildur vill sjá fleiri mæta á Laugardalsvöllinn.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Íslenska kvennalandsliðið tók sigur gegn Úkraínu og að mati Hildar Antonsdóttur var margt jákvætt í leik liðsins. Nú tekur við stórleikur gegn Englandi þar sem hún segir mikilvægt að liðið sýni ákveðni.

„Mér fannst við stjórna leiknum vel og sköpuðum okkur mikið af færum og hálffærum. Við getum tekið margt vel úr þessum leik, hvernig við nýttum svæðin sem þær gáfu okkur.“


Hún segir að lítið hafi vantað upp á að liðið næði að skora fleiri mörk.

„Það munaði svo ótrúlega litlu að við næðum mörkum inn en við gefum Úkraínu það líka að þær eru mjög góðar í því að koma í veg fyrir mörk. Ég held að við þurfum kannski bara smá heppni.“

Fyrir leikinn gegn Englandi segir hún lykilatriði að halda ró á boltanum.

„Við getum alveg haldið í boltann betur á móti þeim. Við erum að verjast þannig að það er mikilvægt fyrir okkur að þegar við erum með boltann að hafa ró á honum. Svo við getum reynt að búa til einhver færi fyrir okkur á móti þeim og nýta þau færi.“

Hildur segir að liðið þurfi að setja tóninn snemma í leiknum.

„Við þurfum að vera ákveðnar á móti þeim. Við erum að verjast og leyfa þeim að finna fyrir því.“

„Við þurfum að vera smá leiðinlegar, láta þær finna fyrir því og keyra á þær.“

Að lokum kallar hún eftir stuðningi úr stúkunni.

„Bara komið á völlinn og styðjið okkur.“

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.


Slapp
banner
banner