Agla María: Þetta eru allt erfiðir leikir
Auglýsing

Agla María Albertsdóttir skoraði eitt og lagði upp annað í sigri Stjörnunnar í kvöld

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Agla María Albertsdóttir átti stórleik er Íslandsmeistarar Stjörnunnar lögðu Val að velli á Hlíðarenda, 1-3, í Pepsi-deild kvenna í kvöld.
Agla lagði upp fyrsta mark kvöldsins á Sigrún Ellu Einarsdóttur áður en hún skoraði sjálf þriðja og síðasta mark Stjörnunnar.
„Þetta er bara mjög góð tilfinning, við lögðum upp með að klára þetta hérna í dag.\"
Valsstúlkur mættu sterkar til leiks í seinni hálfleik og jöfnuðu metin strax á 47. mínútu þökk sé marki Elínar Mettu Jensen en Stjarnan svaraði því með tveimur mörkum á stuttum tíma.
„Við höfðum allan tíman trú á því að við myndum klára þetta í dag, ég er mjög sátt með að skora og leggja upp í dag.\"
Stjarnan hefur byrjað mótið á þremur sigrum og einu jafntefli og er Agla sátt með þá stigasöfnun þó hún hefði viljað sigur gegn ÍBV í síðasta leik.
„Við erum sáttar með þetta, við viljum vera með fullt hús stiga en þetta eru allt mjög erfiðir leikir sem við erum búnar að vera fara í þannig að þetta er bara mjög gott.\"