sun 16. maí 2021 16:20
Victor Pálsson
Moyes: Vona að Lingard horfi á okkur sem möguleika
Mynd: Getty Images
David Moyes, stjóri West Ham, veit ekki hvort félagið geti nælt í Jesse Lingard endanlega frá Manchester United í sumar.

Lingard var lánaður til West Ham frá Man Utd í janúar og hefur spilað gríðarlega vel fyrir félagið eftir komuna.

Margir vonast eftir því að Lingard skrifi endanlega undir hjá Hömrunum sem eiga tvo leiki eftir á tímabilinu.

Moyes veit ekki mikið að svo stöddu en framtíð leikmannsins er algjörlega í höndum Man Utd.

„Ég veit ekki hversu mikla möguleika við eigum. Ég tel að Jesse hafi notið sín hér, ég vona það, við höfum notið þess að hafa hann," sagði Moyes.

„Hann er leikmaður Manchester United svo þeir ráða hvað þeir gera við hann. Ef þeir kjósa að láta hann fara þá vona ég að hann horfi á okkur sem mögulegan kost."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner