Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 16. júní 2022 11:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Brighton vill ekki selja - City gæti þurft að greiða 50 milljónir
Mynd: EPA
Manchester City hefur áhuga á Marc Cucurella leikmanni Brighton. Cucurella er 23 ára vinstri bakvörður sem kom til Brighton frá Getafe í fyrra.

Hann átti gott fyrsta tímabil á Englandi og nú horfa Englandsmeistararnir til hans.

Brighton greiddi Getafe 15 milljónir punda fyrir Cucurella síðasta sumar en ljóst er að City þarf að greiða talsvert hærri upphæð fyrir Spánverjann.

Brighton vill ekki selja leikmanninn og hann á fjögur ár eftir af samningi sínum við félagið.

Fyrr í sumar hefur verið talað um að Brighton vilji 50 milljónir punda fyrir leikmanninn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner