Fotbolti.net
16.06.26 - 22:02
Kári Snorrason

Óskar: Við erum nær þessu liði en menn trúa

Auglýsing
Óskar Hrafn Þorvaldsson.

Óskar Hrafn Þorvaldsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Við erum nær þeim en margir trúa,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, eftir 2-0 tap liðsins gegn Íslandsmeisturum Víkings fyrr í kvöld.

KR situr nú í öðru sæti deildarinnar sex stigum á eftir Víkingi. Hann fór út um víðan völl í viðtali eftir leik.
Besta deildin: Tíu í röð - Ótrúlegur karakter hjá Stjörnunni
TENGT EFNI

Besta deildin: Tíu í röð - Ótrúlegur karakter hjá Stjörnunni

Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 - 0 KR
„Ég geri þetta upp sem leik sem við köstuðum frá okkur, leik sem við hefðum átt að vinna. Á meðan að við erum ekki jafn miskunnarlausir og Víkingarnir eru, í þessu fáu skipti sem þeir fá eitthvað, að þá eigum við enn þá smá í land,“ sagði Óskar.

Ekki nóg að vera sætur
Óskar segir það mikið sem hann geti tekið út úr leiknum og taldi leikinn vera fullkomið tækifæri til að vinna Víking.

„Það sem við ræddum fyrir leik var að taka Víking út úr þægindaramannum þeirra. Ég held að það sé óhætt að segja að það hafi heppnast. Við ætluðum að reyna fara í gegnum þá á okkar hátt. Ég held að við komumst í nægilega góðar stöður til að skora tvö, þrjú mörk. Á móti kemur þegar þú ert kominn á þann stað sem við erum á að þá þarftu að læra hratt.“

„Þá færðu ekkert rosalega mikið fyrir að vera sætur, pressa vel og spila frábæran fótbolta. Á móti liði eins og Víkingi þarf að vinna þá. Mér fannst við sóa frábæru tækifæri til að vinna þá í dag. Það svíður. Víkingur er frábært lið, langbest mannaða lið deildarinnar, dýrasta lið deildarinnar og með frábæra reynslu. Við erum nær þessu liði en menn trúa. Við þurfum að fara yfir síðasta þröskuldinn sem er að vinna þá.“

„Mér fannst við sóa frábæru tækifæri til að vinna þá í dag.“

„Mér fannst við sóa frábæru tækifæri til að vinna þá í dag.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Færð ekkert rosalega mikið fyrir að vera sætur, pressa vel og spila frábæran fótbolta.“

„Færð ekkert rosalega mikið fyrir að vera sætur, pressa vel og spila frábæran fótbolta.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.