Diljá í undanúrslit - Túfa í miklu brasi

Diljá Ýr Zomers.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar Smári Haraldsson og Túfa ræða saman.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Diljá Ýr Zomers.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðskonan Diljá Ýr Zomers kom inn af bekknum eftir tæpan klukkutíma þegar Brann vann 0-2 sigur gegn Lyn í norsku bikarkeppninni í dag.
Diljá byrjaði af bekknum en þegar hún kom inn á var staðan 0-1. Brenna Lovera, fyrrum leikmaður Selfoss, bætti við öðru marki Brann stuttu eftir innkomu Diljár.

TENGT EFNI
Diljá Ýr blómstrar í Noregi: Fótboltinn hentar mér mjög vel
Brann er komið í undanúrslit bikarsins og mun mæta Viking þar. Brann er að eiga geggjað tímabil þar sem liðið er jafnframt með þægilegt forskot á toppi norsku deildarinnar.
Túfa í brasi
Í Svíþjóð tapaði Íslendingalið Varnamo gegn Helsingborg á heimavelli. Logi Hrafn Róbertsson lék ekki með Varnamo í leiknum en þjálfari liðsins er Srdjan Tufegdzic, betur þekktur sem Túfa.
Túfa, sem er fyrrum þjálfari Vals og fleiri félaga á Íslandi, tók við Varnamo í byrjun þessa árs eftir að liðið hafði fallið úr sænsku úrvalsdeildinni. Eftir tapið í dag er Varnamo í næst neðsta sæti B-deildarinnar með tíu stig úr tólf leikjum.
Varnamo hefur tapað fjórum deildarleikjum í röð.