Risastór verðmiði á Tonali

Sandro Tonali.

Mynd: EPA

Sandro Tonali.

Mynd: EPA
Newcastle United hefur sett 100 milljóna punda verðmiða á ítalska landsliðsmanninn Sandro Tonali.
Samkvæmt The Times mun félagið ekki íhuga að selja miðjumanninn fyrir lægri upphæð, en Newcastle greiddi 55 milljónir punda fyrir hann þegar hann kom frá AC Milan sumarið 2023.

Tottenham hefur verið sterklega orðað við Tonali að undanförnu, en Roberto De Zerbi, stjóri Lundúnaliðsins, er sagður vera mikill aðdáandi leikmannsins.
Þá er Tonali sagður opinn fyrir því að færa sig til norðurhluta Lundúna þrátt fyrir að Tottenham sé ekki í Evrópukeppni á næsta tímabili.
Arsenal og Manchester United hafa einnig verið nefnd til sögunnar í tengslum við ítalska miðjumanninn, en óljóst er hvort Tottenham geti staðið undir þeim kröfum sem Newcastle gerir.