Stór borði fyrir Ingvar - Logi tróð upp í treyjunni hans

Borðinn flotti.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Borðinn flotti.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Markmaðurinn heitir Ingvar, hann er fullkominn eins og ég," syngja stuðningsmenn Víkings um markvörðinn Ingvar Jónsson sem hefur gert svo mikið fyrir Fossvogsfélagið.
Fyrir stórleik Víkings og KR í Bestu deildinni í kvöld frumsýndu stuðningsmenn Víkings nýjan borða til heiðurs Ingvari sem nú berst við krabbamein.
Fyrir stórleik Víkings og KR í Bestu deildinni í kvöld frumsýndu stuðningsmenn Víkings nýjan borða til heiðurs Ingvari sem nú berst við krabbamein.
Hinn 36 ára gamli Ingvar hefur verið lykilmaður í liði Víkinga síðustu sex ár. Í síðasta mánuði var tilkynnt að hann hefði greinst með illkynja krabbamein og væri á leið í lyfjameðferð.
Fótboltasamfélagið hefur staðið þétt við bakið á Ingvari en landsliðsmaðurinn Logi Tómasson mætti fyrir leikinn í dag og tróð upp í markmannstreyju merktri Ingvari.
Logi verður með styrktartónleika fyrir Ingvar í Víkingsheimilinu á fimmtudaginn.
Meðfylgjandi þessari frétt eru myndir sem Hafliði Breiðfjörð tók.