Fotbolti.net
16.07.13 - 22:09
Arnar Daði Arnarsson

Óli Jó.: Höfðum mikla yfirburði

Auglýsing
Óli Jó.: Höfðum mikla yfirburði
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ólafur Jóhannesson þjálfari Hauka var ánægður með 5-1 sigur sinna manna á Völsung í kvöld. Liðið lenti undir en voru hinsvegar miklu betri allan leikinn eftir að hafa lent undir og unnu afar auðveldan sigur.
,,Ég er ánægður með þrjú stig. Það er það eina sem skiptir máli. Maður er alltaf fúll að lenda undir en við svöruðum því mjög vel í seinni hálfleik og ég er ánægður með leikinn.\"

,,Við vorum með yfirburði í leiknum allan tímann. Staðan var hinsvegar jöfn í hálfleik og þeir komust yfir í leiknum. Leikmennirnir verða að vera á tánum allan tímann. Við lögðum upp með það í hálfleik að við myndum halda haus og fara ekki á taugum og við gerðum það mjög vel,\" sagði Ólafur.

Viðtalið við Óla Jó. er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.