Logi Ólafsson, þjálfari Víkings R. í Pepsi-deild karla, var auðvitað ósáttur með 1-0 tapið gegn Val í Víkinni í kvöld.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 0 - 1 Valur
Víkingar höfðu ekki tapað deildarleik frá því í maí áður en liðið mætti Val í kvöld en það var danski miðjumaðurinn Nicolas Bögild sem gerði sigurmarkið eftir sendingu frá Andra Adolphssyni.
Valsmenn eru á toppnum eftir fyrri hluta tímabils en Logi var allt annað en sáttur með að Bjarni Ólafur Eiríksson hafi ekki verið vísað af velli.
„Mér fannst við vera með gott framlag í leiknum og við vitum hverju Valsmenn eru sterkir í. Þeir eru ekki mikið að skapa opin færi en það var sem við lögðum upp með," sagði Logi.
„Við vissum að við værum að spila á móti öflugu liði sem er kannski besta liðið á landinu í dag. Þannig það var ekkert annað að ræða en að spila öfluga vörn."
Logi var ósáttur með dómara leiksins fyrir að sýna ekki hug og vísa Bjarna af velli.
„Hann gefur þessu nýja möguleika og víddir. Það sem skipti sköpum samt í þessum leik er hugleysi dómarans að vísa ekki Bjarna af velli. Þetta eru mistök sem gerir það að verkum að drengurinn er í miklu meiri erfiðleikum í stað þess að taka ákvörðun til að hafa hugrekki til þess," sagði hann í lokin.
Athugasemdir