Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 16. júlí 2018 15:45
Ívan Guðjón Baldursson
Leeds fær markvörð lánaðan frá Chelsea (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Hinn 24 ára gamli Jamal Blackman verður að öllum líkindum aðalmarkvörður Leeds United á komandi tímabili.

Blackman er uppalinn hjá Chelsea og kemur á láni út tímabilið. Hann hefur aldrei spilað fyrir aðalliðið en hefur leikið fyrir Östersund, Wycombe og Sheffield United á láni.

Blackman gerði góða hluti á milli stanganna hjá Sheffield á síðasta tímabili er liðið endaði í 10. sæti Championship deildarinnar.

Marcelo Bielsa, fyrrverandi landsliðsþjálfari Argentínu og Síle, tók við Leeds fyrir mánuði. Hann fær það hlutverk að reyna að koma liðinu upp um deild.

Maurizio Sarri tók við Chelsea á dögunum og er búist við að félagið verði afar virkt á leikmannamarkaðinum næstu vikur.
Athugasemdir
banner