Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 16. júlí 2018 14:15
Arnar Daði Arnarsson
Sigrún Ella í Stjörnuna (Staðfest)
Sigrún Ella í leik með Stjörnunni í fyrra.
Sigrún Ella í leik með Stjörnunni í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Sigrún Ella Einarsdóttir hefur fengið leikheimild með Stjörnunni í Pepsi-deild kvenna og gæti því leikið með liðinu á miðvikudaginn þegar Stjarnan mætir Breiðablik í 10. umferð deildarinnar.

Sigrún Ella lék með Fiorentina á Ítalíu en ákvað að koma heim og ganga í raðir Stjörnunnar.

Sigrún á tvo A-lands­leiki að baki og níu leiki með yngri landsliðum.

Hún lék 10 leiki með Stjörnunni á síðasta tímabili áður en hún hélt til Ítalíu. Hún hefur leikið 153 meistaraflokksleiki á Íslandi og skorað í þeim 70 mörk.

Athugasemdir
banner
banner