Arsenal búið að ná samkomulagi um kaupverðið á Tzolis

Christos Tzolis skorar mark fyrir Club Brugge.

Mynd: EPA

Arsenal hefur náð 34 milljóna punda samkomulagi við Club Brugge um kaup á kantmanninum Christos Tzolis.
Arsenal seldi Leandro Trossard til Besiktas í vikunni og er núna að ganga frá kaupum á Tzolis sem er 24 ára grískur landsliðsmaður.

The Athletic segir að Arsenal hafi sent Juventus fyrirspurn vegna tyrkneska landsliðsmannsins Kenan Yildiz en þegar Juve hafi svarað að hann væri ekki til sölu hafi aðrir kostir verið skoðaðir.
Í fyrra reyndi Crystal Palace að fá Tzolis en Club Brugge hafnaði tilboði félagsins.
Tzolis þekkir enska boltann en hann var hjá Norwich í þrjú ár. Hann skoraði 22 mörk og átti 29 stoðsendingar í 52 leikjum í öllum keppnum fyrir Brugge á síðasta tímabili. Liðið vann belgísku deildina í 20. sinn.