Fotbolti.net
16.07.26 - 09:55
Kári Snorrason

Bellingham sló varamann Argentínu eftir leik

Bellingham var heitt í hamsi eftir leik.

Bellingham var heitt í hamsi eftir leik.

Canon

Mynd: EPA

Jude Bellingham sló Valentin Barco, varamann Argentínu, í hnakkann eftir 2-1 tap Englands í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í gær.

Barco kom ekki við sögu í leiknum en í fögnuði með liðsfélögum eftir leik gekk Bellingham að honum og sló hann. Í kjölfarið urðu stimpingar á milli Englendinga og Argentínumanna.
Ekki liggur fyrir hvers vegna Bellingham sló Barco en mögulegt er að fögnuður Barco við jöfnunarmark Argentínu, þar sem hann fagnaði í andlitið á Englendingum, hafi pirrað Bellingham.

Barco hefur einungis komið við sögu í einum leik á HM en hann er leikmaður Strasbourg í Frakklandi og á leið til Chelsea.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.