Fotbolti.net
16.07.26 - 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Evrópa í dag - Stjarnan spilar í Færeyjum í beinni á Livey

Stjörnumenn fagna

Stjörnumenn fagna

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Stjarnan og Vestri spila seinni leikinn í einvígum sínum í Evrópukeppni í kvöld.

Vestri heimsótti Qarabag til Aserbaísjan í síðustu viku og tapaði 3-0. Liðin mætast á heimavelli Þróttar í Laugardal í kvöld. Takist liðinu að snúa blaðinu við mætir Vestri CSKA Sofia frá Búlgaríu eða Derry City frá Norður Írlandi í næstu umferð forkeppni Evrópudeildarinnar. Annars mætir liðið annað hvort Norður Írlandi eða RFS frá Lettlandi í forkeppni Sambandsdeildarinnar.

Stjarnan vann frábæran 3-1 sigur á færeyska liðinu Víkingi frá Götu á Samsungvellinum í forkeppni Sambandsdeildarinnar í síðustu viku. Liðin mætast í Færeyjum klukkan 17 og verður leikurinn sýndur beint á Livey. Fari Stjarnan með sigur af hólmi mætir liðið annað hvort Differdange frá Lúxemborg eða Ilves frá Finnlandi í næstu umferð. Staðan er markalaus í því einvígi eftir fyrri leikinn í Lúxemborg.

Lærisveinar Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar í NSÍ Runavik heimsækja Hamrun Spartans frá Möltu í seinni leik liðanna í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Fyrri leiknum lauk með 1-1 jafntefli í Færeyjum. Alex Freyr Elísson var í byrjunarliði NSÍ en þurfti að fara meiddur af velli í fyrri hálfleik.
fimmtudagur 16. júlí

Evrópudeildin
17:30 Derry City - CSKA Sofia
17:30 Universitatea Cluj - Dynamo K.
18:00 Aluminij - Sheriff
18:15 Ferencvaros - Vojvodina
18:30 Zilina - Hajduk Split
20:00 Vestri - Qarabag (0-3)

Sambandsdeildin
15:00 Astana - Dinamo Tirana
15:00 Inter Turku - Sarajevo
15:00 Yelimay Semey - Alashkert
16:00 Ilves - Differdange
16:00 Paide - Hegelmann Litauen
16:00 Pyunik - Marsaxlokk
16:00 St Josephs - Bohemians
16:00 Torpedo K. - Zira
16:30 Levadia T - Caernarfon
16:30 Rigas FS - Glentoran FC
17:00 BATE - Elbasani
17:00 Dinamo Tb. - Mondorf-les-Bains
17:00 Santa Coloma - Penybont
17:00 Milsami - Velez M.
17:00 Vikingur - Stjarnan (1-3)
17:00 Zalgiris - OFK Petrovac
17:30 Hamrun Spartans - NSI Runavik (1-1)
18:00 Ballkani - Connahs QN
18:00 Shkendija - Europa FC
18:00 Sileks - Dinamo Minsk
18:45 Linfield FC - Nomme Kalju
18:45 Mornar - Atletic Escaldes
19:00 Virtus - Dila Gori
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.