Fotbolti.net
16.07.26 - 14:15
Elvar Geir Magnússon

Mesta áhorf síðan England mætti Ítalíu í úrslitaleik EM

Svekktir Englendingar að horfa á leikinn á Benidorm.

Svekktir Englendingar að horfa á leikinn á Benidorm.

Canon

Mynd: EPA

Breska ríkissjónvarpið hefur tilkynnt að 24 milljónir hafi stillt inn til að horfa á undanúrslitaleik Englands og Argentínu á HM.

Það er mesta sjónvarpsáhorf á Bretlandi í fimm ár eða síðan England og Ítalía léku til úrslita á EM.
Sjáðu HM mörkin: Geggjuð argentínsk endurkoma
TENGT EFNI

Sjáðu HM mörkin: Geggjuð argentínsk endurkoma

Englendingar voru sárir og svekktir eftir leik enda tapaði þeirra lið niður forystu í lokin. Lautaro Martínez skoraði sigurmarkið.

„Úrslitin í gærkvöldi urðu kannski ekki þau sem stuðningsmenn Englands vonuðust eftir, en þetta var enn eitt tækifærið þar sem milljónir manna um allt Bretland sameinuðust um að styðja liðið,“ segir Alex Kay-Jelski, íþróttastjóri BBC.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.