Saliba á leið í aðgerð - Frá næstu mánuðina

Mynd: EPA

Mynd: EPA
William Saliba, varnarmaður Arsenal og franska landsliðsins, mun missa af fyrstu mánuðunum á næsta tímabili í ensku úrvalsdeildinni vegna meiðsla.
Saliba hefur verið að berjast við meiðsli í baki á árinu og hann þurfti að fara af velli þegar Frakkland tapaði gegn Spáni í undanúrslitum á HM á dögunum.

Franski miðillinn L'Equipe greinir frá því að hann sé á leið í aðgerð og verði frá í 4-5 mánuði.
Saliba átti frábært tímabil þegar Arsenal fagnaði enska meistaratitlinum á síðustu leiktíð. Næsta tímabil hefst eftir rúman mánuð þegar Arsenal fær nýliða Coventry í heimsókn þann 21. ágúst.
Það er gríðarlegt áfall fyrir ensku meistarana að Saliba verður ekki með líklega fram í desember.
Frakkland mætir Englandi í leiknum um bronsið á laugardaginn.