Fotbolti.net
16.07.26 - 12:30
Sævar Þór Sveinsson

Stjarnan með meiri veltu en Víkingur Götu

Emil Atlason skoraði þrennu í fyrri leik liðanna.

Emil Atlason skoraði þrennu í fyrri leik liðanna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Utan

Vestri endaði í 3. sæti Bestu deildarinnar og byrjar því í 1. umferð Sambandsdeildarinnar. Í fyrstu viðureign Stjörnunnar mæta þeir færeysku meisturunum í Víkingi Göta. Fyrri leikur liðanna fór fram þann 9. júlí síðastliðinn í Garðabæ og enduðu leikar 3-1 Stjörnunni í vil. Núna í komandi viku spila liðin í Færeyjum þann 16. júlí.

Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 12. júlí á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistilinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

Smelltu hér til að skrá þig í fría viku og lesa pistilinn í heild sinni.

Rekstrarreikningur hjá Stjörnunni er stærri en hjá Víkingi. Stjarnan velti 464 milljónum króna á síðasta ári en veltan hjá Víkingi var 303 milljónir króna. Það er hins vegar áhugavert að sjá að miðasölutekjur Víkings rúmlega einni milljón hærri en miðasölutekjur Stjörnunnar.

Þá var töluverður munur á afkomu þessara liða. Stjarnan var rekin með tapi upp á 80 milljónir króna, sem var versta afkoma ársins 2025 hjá íslensku fótboltaliði, en á sama tíma skilaði Víkingur hagnaði upp á 73 milljónir króna.

Skuldir Stjörnunnar voru margfalt hærri en hjá Víkingi. Skuldir Stjörnunnar stóðu í 72 milljónum krónum en skuldir Víkings voru einungis 6 milljónir króna. Skuldahlutfall Stjörnunnar var því 68% en 4% hjá Víkingi.

UTAN VALLAR: Ársreikningar íslensku liðanna bornir saman við Evrópuandstæðingana
TENGT EFNI

UTAN VALLAR: Ársreikningar íslensku liðanna bornir saman við Evrópuandstæðingana

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.