Fotbolti.net
16.07.26 - 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Tolli hjá HK út 2028 - Valur vildi fá hann í vetur

Tolli hjá HK út 2028 - Valur vildi fá hann í vetur
Canon

Mynd: HK

Lengjudeildin
Unglingalandsliðsmaðurinn Þorvaldur Smári Jónsson hefur skrifað undir nýjan samning við HK og er nú samningsbundinn út tímabilið 2028.

Tolli, eins og hann er kallaður, er á sínu öðru ári í meistaraflokki og er orðinn mikilvægur partur af liði HK sem spilar í Lengjudeildinni. Hann hefur glímt við meiðsi og hefur ekki verið með í síðustu sex leikjum liðsins.

Í apríl fjallaði Fótbolti.net um áhuga Vals á miðjumanninum en hann ákvað að vera áfram hjá HK.

Hann hefur á þessu ári spilað fimm leiki fyrir U19 ára landslið Íslands auk þess að hafa farið á reynslu hjá enska úrvalsdeildarliðinu Sunderland.
Hin hliðin - Þorvaldur Smári Jónsson (HK)
TENGT EFNI

Hin hliðin - Þorvaldur Smári Jónsson (HK)

„Það er mikil ánægja með að Tolli hafi ákveðið að framlengja samningi sínum við félagið og vera hluti af þeirri vegferð sem liðið er á. Hlökkum til að fylgjast með Tolla í rauðu og hvítu treyjunni áfram!" segir í tilkynningu HK.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding17+2235
2Þróttur R.18+1934
3Fylkir18+934
4Njarðvík18+832
5HK18+931
6Grótta17+126
7Vestri18-924
8Leiknir R.18-322
9Grindavík18-620
10ÍR18-919
11Völsungur18-1417
12Ægir18-278
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.