Víðir Sig: Ólöf sú yngsta hjá Breiðabliki í 40 ár - tvær skoruðu 12 ára

Breiðablik á yngsta markaskorarann í deildinni frá 2018

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristrún Lilja Daðadóttir var 14 ára þegar hún skoraði fyrst árið 1986.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristrún Heimisdóttir skoraði 12 ára og var með þrennu 13 ára.

Mynd: Aðsend

Þórhildur Þórhallsdóttir skoraði 14 ára fyrir HK/Víking.

Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir

Katrín Ómarsdóttir var nýorðin 14 ára þegar hún skoraði sitt fyrsta mark.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik á yngsta markaskorarann í deildinni frá 2018

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hún varð jafnframt fyrsta fjórtán ára stúlkan til að skora í deildinni í átta ár og aðeins sú fjórða frá síðustu aldamótum.
En þegar horft er lengra aftur í sögu kvennaknattspyrnunnar á Íslandi má sjá að það var algengt á fyrstu árum hennar að stúlkur á aldrinum 12 til 14 ára spiluðu með liðunum og skoruðu mörk. Í það minnsta tvær skoruðu 12 ára gamlar í deildinni og önnur þeirra, Kristrún Heimisdóttir úr KR, tvívegis, en hún náði síðan að skora þrennu í deildinni áður en hún varð fjórtán ára.
Sigríður Lovísa fyrir 40 árum
Ólöf Margrét var 14 ára og 271 dags gömul í gærkvöld þegar hún skoraði fyrir Breiðablik, um það bil þremur mínútum eftir að hún kom inn á sem varamaður. Þetta var hennar annar leikur en hún kom einnig inn á í leik liðsins gegn Fram á dögunum.
Það þarf að fara aftur til ársins 1986 til að finna yngri markaskorara fyrir Breiðablik í efstu deild Sigríður Lovísa Sigurðardóttir skoraði fjögur mörk fyrir Kópavogsfélagið sumarið 1986, hún var aðeins 13 ára og 57 daga gömul þegar það fyrsta leit dagsins ljós, sigurmark í leik gegn ÍA 3. júlí, og undirritaður hefur ekki fundið yngri leikmann til að skora frá þeim tíma. Allar ábendingar um slíkt eru vel þegnar.
Sama ár skoraði Kristrún Lilja Daðadóttir, sem er bæði fjórða leikjahæst og fjórða markahæst í sögu Kópavogsfélagsins í deildinni, sitt fyrsta mark 3. júní 1986, gegn Keflavík, þá 14 ára og 237 daga gömul.
Svava líklega yngst frá upphafi
Breiðablik á líklega yngsta markaskorara deildarinnar frá upphafi en Svava Tryggvadóttir var aðeins 12 ára gömul þegar hún skoraði fyrir félagið árið 1977.
Undirritaður hefur ekki staðfestan aldur á öllum sem skoruðu í deildinni fyrir 1990 en auk Svövu hefur að minnsta kosti ein stúlka skorað 12 ára gömul í efstu deild. Það er Kristrún Heimisdóttir, sem lengi lék með KR, en hún var 12 ára og 297 daga gömul þegar hún skoraði sigurmark KR gegn Val, 1-0, sumarið 1984.
Kristrún skoraði þrennu 13 ára
Það var ekki eina mark Kristrúnar Heimisdóttur á meðan hún var 12 ára því hún skoraði aftur í leik gegn Víkingi 35 dögum síðar, og aftur var það mikilvægt mark í 2-1 sigri Vesturbæjarliðsins. Hún skoraði síðan sjö mörk í deildinni árið eftir, 1985, þegar hún var 13 ára gömul, og náði að skora þrennu í 4-1 sigri KR gegn KA í ágúst það ár, fjórum dögum fyrir fjórtán ára afmælið.
Kristrún, sem síðar átti m.a. eftir að sitja á Alþingi sem varaþingmaður og starfa sem framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, ásamt því að kenna lögfræði við íslenska háskóla og starfa sem aðstoðarmaður ráðherra, skoraði samtals 31 mark í 105 leikjum með KR í efstu deild en hún lagði skóna á hilluna 22 ára gömul, og hafði þá leikið tíu ár í efstu deild!
Guðrún nýorðin 13 ára
Guðrún Jóna Kristjánsdóttir, samherji Kristrúnar hjá KR og síðar þjálfari um langt árabil, var aðeins 13 ára og 24 daga gömul þegar hún skoraði sitt fyrsta mark, í 3-1 sigri KR gegn Ísfirðingum í ágúst 1985.
Þórhildur síðust á undan Ólöfu
Síðasta fjórtán ára stúlkan á undan Ólöfu til að skora í deildinni var Þórhildur Þórhallsdóttir, núverandi leikmaður Víkings. Hún var aðeins 14 ára og 213 daga gömul þegar hún skoraði fyrir HK/Víking gegn Breiðabliki 31. júlí 2018.
Síðan þarf að fara aftur til ársins 2001 til að finna tvær stúlkur sem skoruðu 14 ára gamlar. Katrín Ómarsdóttir, síðar landsliðskona og atvinnumaður, var 14 ára og 67 daga gömul þegar hún skoraði fyrir KR gegn Grindavík 2. september 2001. Aðeins fimm dögum áður hafði Arna Gunnarsdóttir skorað fyrir Stjörnuna gegn Grindavík, 14 ára og 258 daga gömul.
Þessi grein er alls ekki tæmandi um yngstu markaskorara efstu deildar kvenna og þeir sem geta staðfest upplýsingar um stúlkur sem hafa verið yngri en fjórtán ára þegar þær fyrst komust á blað í deildinni mega hafa samband við undirritaðan á netfanginu [email protected].

Kristrún Lilja Daðadóttir var 14 ára þegar hún skoraði fyrst árið 1986.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristrún Heimisdóttir skoraði 12 ára og var með þrennu 13 ára.

Mynd: Aðsend

Þórhildur Þórhallsdóttir skoraði 14 ára fyrir HK/Víking.

Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir

Katrín Ómarsdóttir var nýorðin 14 ára þegar hún skoraði sitt fyrsta mark.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð




