Lið vikunnar í enska - Man Utd á þrjá
Eftir hverja umferð opinberum við úrvalslið vikunnar og hér er það fyrsta á tímabilinu:

Maarten Stekelenburg - Everton: Átti öflugan fyrsta leik fyrir Everton sem náði í stig gegn Tottenham.

Mynd: Getty Images

Antonio Valencia - Manchester United: Kemur gríðarlega vel gíraður til leiks og átti frábæran leik gegn Bournemouth.

Mynd: Getty Images

Eric Bailly - Manchester United: Lofar hrikalega góðu fyrir framhaldið varðandi varnarleik United.

Mynd: Getty Images

Curtis Davies - Hull: Leiðtogi í vörn Hull sem kom á óvart með því að vinna Englandsmeistara Leicester.

Mynd: Getty Images

César Azpilicueta - Chelsea: Conte og lærisveinar hófu leik með sigri gegn West Ham.

Mynd: Getty Images

Sadio Mane - Liverpool: Sá stimplar sig vel inn hjá Liverpool. Sýndi gríðarleg gæði og skoraði magnað mark í sigrinum gegn Arsenal.

Mynd: Getty Images

Phillipe Coutinho - Liverpool: Skoraði eitt af mörkum tímabilsins strax í fyrsta leik!

Mynd: Getty Images

Gaston Ramirez - Middlesbrough: Mikilvægur hjá nýliðunum.

Mynd: Getty Images

Eden Hazard - Chelsea: Eftir vonbrigðin á síðasta tímabili virðist Hazard aftur vera kominn í rétta gírinn.

Mynd: Getty Images

Zlatan Ibrahimovic - Man Utd: Auðvitað mark í fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni. Hvað er hægt að segja um þennan mann?

Mynd: Getty Images

Sergio Aguero - Man City: Ætlar að taka gullskóinn aftur!

Mynd: Getty Images



