16.08.26 - 21:18
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski bikarinn: Vandræðalegt tap í fyrsta leik Gattuso

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Það fóru fjórir leikir fram í ítalska bikarnum í dag þar sem helst er að frétta að Lazio datt óvænt úr leik á heimavelli gegn B-deildarliði Mantova í frumraun Gennaro Gattuso við stjórnvölinn.
Gattuso tók við Lazio í sumar eftir að Maurizio Sarri færði sig yfir til Atalanta og byrjar stjórnartíð hans ekki vel.
Lazio skapaði mikið af færum gegn Mantova en varnarleikur liðsins var ekki nógu góður. Gestirnir sköpuðu sér færri en betri færi og nýttu þau betur, svo lokatölur urðu 0-2.
Francesco Ruocco og Ismael Cajazzo skoruðu mörkin.
Mikael Egill Ellertsson var þá í byrjunarliði Genoa sem lagði Ascoli auðveldlega að velli eftir að hafa lent undir í fyrri hálfleik.
Frosinone og Verona eru einnig komin áfram í næstu umferð.
Lazio 0 - 2 Mantova
Genoa 4 - 1 Ascoli
Frosinone 4 - 1 Juve Stabia
Verona 2 - 2 Virtus Entella
3-2 í vítaspyrnukeppni