16.08.26 - 18:54
Ívan Guðjón Baldursson
Liverpool og Forest unnu - Newcastle tapaði

Mynd: Liverpool

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: Liverpool
Ensku úrvalsdeildarfélögin Liverpool, Nottingham Forest og Newcastle spiluðu æfingaleiki í dag.
Liverpool hafði betur gegn Como þökk sé mörkum frá Cody Gakpo og Jérémy Jacquet eftir að liðin gerðu markalaust jafntefli fyrr í dag.
Gakpo skoraði og lagði upp í fyrri hálfleiknum og átti Jeremie Frimpong einnig stoðsendingu.
Lærlingar Andoni Iraola voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og vörðust eftir leikhlé. Þeir gáfu lítið af færum á sér og tókst lærlingum Cesc Fábregas ekki að minnka muninn, svo lokatölur urðu 2-0.
Liverpool byrjar nýtt úrvalsdeildartímabil á útivelli gegn Newcastle um næstu helgi.
Chris Wood og Luca Netz skoruðu þá í fyrri hálfleik er Nottingham Forest lagði Brest að velli með tveimur mörkum gegn engu, í sínum síðasta leik fyrir upphafsflautið í úrvalsdeildinni. Forest tekur þar á móti Leeds United næsta laugardag.
Newcastle tapaði að lokum gegn Strasbourg eftir vítakeppni. William Osula náði forystunni fyrir Newcastle eftir stoðsendingu frá Jacob Murphy en Gessime Yassine jafnaði metin í síðari hálfleik.
Lokatölur urðu 1-1 eftir venjulegan leiktíma svo gripið var til vítakeppni og þar höfðu Frakkarnir betur eftir að Newcastle klúðraði þremur vítaspyrnum. Osula klúðraði af punktinum ásamt Jacob Ramsey og Aladji Bamba.
Liverpool 2 - 0 Como
1-0 Cody Gakpo ('23)
2-0 Jeremy Jacquet ('44)
Nottingham Forest 2 - 0 Brest
1-0 Chris Wood ('23, víti)
2-0 Luca Netz ('30)
Newcastle 1 - 1 Strasbourg
1-0 William Osula ('38)
1-1 Gessime Yassine ('69)
2-3 í vítaspyrnukeppni