16.08.26 - 23:10
Ívan Guðjón Baldursson
PSG tapaði úrslitaleiknum gegn tíu andstæðingum

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Lens 1 - 0 PSG
1-0 Florian Thauvin ('32)
Rautt spjald: Kyllian Antonio, Lens ('39)
Rautt spjald: Nuno Mendes, PSG ('87)

Lens og PSG áttust við í úrslitaleik franska ofurbikarsins fyrr í kvöld og náði Florian Thauvin forystunni fyrir heimamenn í Lens á 32. mínútu. Markið var nokkuð heppilegt þar sem varnarmaðurinn Matthieu Udol gaf stoðsendinguna alveg óvart eftir misheppnaða marktilraun.
Fyrri hálfleikurinn var bragðdaufur en Kyllian Antonio, leikmaður Lens, fékk að líta beint rautt spjald fyrir hættulega tæklingu á 39. mínútu.
Gestirnir frá París sköpuðu nokkur góð færi í seinni hálfleik en þeim tókst ekki að setja boltann í netið. Bakvörðurinn öflugi Nuno Mendes fékk svo að líta beint rautt spjald fyrir að gefa olnbogaskot á lokamínútunum.
Risaveldi PSG tókst ekki að jafna metin svo lokatölur urðu 1-0 fyrir Lens. Frábær byrjun hjá Dino Toppmöller í þjálfarastarfinu eftir að hafa tekið við af Pierre Sage.