Aston Villa vann sinn annan sigur í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili í kvöld þegar liðið lagði Southampton 1-0. Jacob Ramsey skoraði markið undir lok fyrri hálfleiks.
Villa liðið, undir stjórn Steven Gerrard byrjaði tímabilið afar illa en liðið er með sjö stig eftir sjö umferðir.
Gerrard var mjög ánægður með sigurinn í kvöld.
„Þetta er stór sigur. Þetta var ekki fallegt en miðað við pressuna sem er á mér, þjálfarateyminu og leikmönnum vissum við að við þurftum að vera raunsæir. Ég er stoltur af strákunum, við höfum spilað betur en tapað, stundum þarft að hafa þetta ljótt í fótbolta," sagði Gerrard.
Liðið mætir Leeds á útivelli í næstu umferð þann 2. október.
Athugasemdir