lau 16. október 2021 10:37
Brynjar Ingi Erluson
Son og Gil sagðir með veiruna - Missa af næstu þremur leikjum
Heung-Min Son gæti misst af næstu þremur leikjum ef fréttirnar eru sannar
Heung-Min Son gæti misst af næstu þremur leikjum ef fréttirnar eru sannar
Mynd: Getty Images
Heung Min-Son og Bryan Gil, leikmenn Tottenham Hotspur, gætu verið frá næstu daga og vikur, ef marka má þann háværa orðróm sem flýgur nú um samfélagsmiðla, en þeir eru sagðir hafa greinst með Covid19.

Nuno Espirito Santo, knattspyrnustjóri Tottenham, greindi frá því í gær frá vandamálum sem komu upp innan klúbbsins, en vildi þó ekki fara dýpra ofan í það.

„Eftir landsleikjatörnina þá koma alltaf upp risastór vandamál. Við erum með vandamál en ég ætla ekki að segja frá því fyrir leikinn," sagði Nuno við blaðamenn í gær.

Samkvæmt ensku miðlunum greindust tveir leikmenn liðsins með Covid19 eftir að hafa snúið til baka úr landsleikjatörninni.

Það er hávær orðrómur um að þessir leikmenn séu þeir Heung-Min Son og Bryan Gil.

Þetta eru sláandi fréttir ef satt reynist. Son er alger lykilmaður í leik Tottenham og verður það mikil blóðtaka að missa hann og þá fékk enska félagið Gil frá Sevilla í sumar, en hann hefur tekið þátt í fjórum leikjum í deildinni á þessu tímabili.

Þeir munu missa af næstu þremur leikjum Tottenham en félagið á þó enn eftir að staðfesta tíðindin.
Athugasemdir
banner
banner
banner