Fotbolti.net
16.10.26 - 23:20
Sigurjón Árni Torfason

Daníel Hafsteins: Ekki eins og ég sé að reyna kýla hann

Auglýsing
Danni Hafsteins var pirraður eftir rauða spjaldið

Danni Hafsteins var pirraður eftir rauða spjaldið

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingar komu í heimsóttu Breiðablik á Eikarvellinum í 4. umferð umspilsins í Bestu deild karla. Leiknum lauk með 2-1 sigri Víkinga í stórskemmtilegum fótboltaleik. Fótbolti.net voru að sjálfsögðu mættir á staðinn og heyrðu í Daníel Hafsteins eftir leik.
Lestu um leikinn: Breiðablik 1 - 2 Víkingur R.
„Bara geggjað að klára þennan leik. Við ætluðum bara að koma hingað og reyna að vinna."

Daníel Hafsteinsson fékk að líta rauða spjaldið eftir að hafa lent saman við Gabríel Snæ leikmann Breiðabliks. Undirritaður varð vitni af því að Jón Guðni, aðstoðarþjálfari Breiðabliks, sagði við Daníel að menn eigi frekar að tækla menn inná vellinum, ekki kýla. Daníel þvertók fyrir að hafa kýlt Gabríel þegar hann tók hann niður. Það urðu svo einhver frekari orðaskipti og m.a. fór orðið fáviti í báðar áttir.

„Ég ætla að hlaupa á eftir honum og ætla að stoppa hann og klárlega alveg groddalegt brot, ég lendi bara illa á honum. Það er ekki eins og ég sé að reyna að kýla eins og þeir eru að ásaka mig um. Það má dæma um það, en ég allavega lendi mjög illa á honum, það er bara eins og það er."

Daníel er þá í banni gegn Fram þegar bikarinn fer á loft í lokaumferðinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.