Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 16. nóvember 2020 17:00
Magnús Már Einarsson
Myndband: Skoraði beint eftir miðju í Þjóðadeildinni
Roy Keane var ekki hrifinn af markverði Albana.
Roy Keane var ekki hrifinn af markverði Albana.
Mynd: Getty Images
Albanía vann Kasakstan 3-1 í Þjóðadeildinni í gær. Mark Kasakstan var hins vegar það sem vakti mesta athygli í leiknum.

Eftir að Albanía komst í 2-0 tók Kasakstan miðju og Aybol Abiken tók eftir því að Etrit Berisha var ekki klár í marki Albaníu.

Aybol skaut beint eftir miðjuna og skoraði.

Roy Keane, sérfræðingur ITV, var ekki hrifinn af tilburðum Berisha í markinu.

„Hvað er hann að gera? Þú myndir aldrei fyrirgefa honum fyrir þetta," sagði Keane.

„Heimskulegt...horfið á þetta. Ég er reiður þegar ég horfi á þetta.!"

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner