Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 17. mars 2021 13:52
Magnús Már Einarsson
21 smitaður hjá Hammarby
Mynd: Getty Images
16 leikmenn og fimm starfsmenn hjá sænska félaginu Hammarby hafa greinst smitaðir með kórónuveiruna.

Hammarby átti að spila bikarleik gegn Trelleborg um næstu helgi en þeim leik hefur að sjálfsögðu verið frestað.


Fyrsti aðilinn hjá Hammarby smitaðist í byrjun mánaðarins og fyrir helgi greindust margir aðrir með veiruna.

Jesper Jansson, yfirmaður íþróttamála hjá Hammarby, segir líklegt að leikmennirnir hafi smitast af mjög smitandi afbrigði af veirunni.

Jón Guðni Fjóluson er á meðal leikmanna Hammarby en hann kom til félagsins í vetur.
Athugasemdir
banner
banner
banner