Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fös 17. mars 2023 21:23
Brynjar Ingi Erluson
Elías Már og Kristian Nökkvi báðir í tapliðum
Mynd: NAC Breda
Elías Már Ómarsson og Kristian Nökkvi Hlynsson hafa verið heitir í hollensku B-deildinni í síðustu leikjum en þeir náðu þó ekki að komast á blað í dag.

Kristian Nökkvi hafði komið að fimm mörkum í síðustu fimm leikjum í deildinni fyrir unglinga- og varalið Ajax, en hans lið náði sér ekki á strik í kvöld er liðið tapaði fyrir Almere City, 2-0.

Þessi ungi leikmaður lék allan leikinn fyrir Ajax sem er í 16. sæti með 31 stig.

Elías Már Ómarsson spilaði þá allan leikinn í fremstu víglínu hjá NAC Breda sem tapaði fyrir toppliði PEC Zwolle, 2-0.

Hann hafði skorað í tveimur leikjum í röð fyrir leikinn í dag. Breda er í 8. sæti með 43 stig og í baráttu um að komast í umspilið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner