Sporting verður í pottinum þegar dregið verður í 8 liða úrslit í Evrópueildinni í hádeginu eftir að hafa unnið Arsenal í vítaspyrnukeppni í gærkvöldi.
Fyrri leikur liðanna endaði með 2-2 jafntefli í Portúgal en staðan var 1-1 eftir 90 mínútur og framlengingu í gær en Sporting vann vítaspyrnukeppnina 5-3 eftir að Gabriel Martinelli lét verja frá sér.
Granit Xhaka kom Arsenal yfir í leiknum en Pedro Goncalves jafnaði metin með mögnuðu marki.
Það vakti athygli á samfélagsmiðlum eftir leikinn að Goncalves gerði grín að Xhaka eftir leikinn. Portúgalinn fagnaði með stuðningsmönnum liðsins eftir sigurinn og hermdi eftir fagni Xhaka þegar hann skoraði fyrir Arsenal í leiknum.
???? Pedro Gonçalves' Did Xhaka's Celebration after Knocking Arsenal out of The Europa League. ????????
— AZR (@AzrOrganization) March 16, 2023
For Context, Xhaka did that celebration after giving Arsenal The Lead against Sporting. pic.twitter.com/4rU5GfyUBM