Ragnar Bragi Sveinsson, fyrirliði Fylkis, verður ekkert með liðinu í sumar. Ragnar Bragi er að jafna sig eftir að hafa farið í aðgerð í vetur í kjölfar krossbandsslita seint á síðasta tímabili.
„Ég á ekki von á því að Ragnar Bragi spili í sumar," sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis, í stuttu spjalli við Fótbolta.net inni á Sprettinum á Akureyri eftir leikinn gegn Þór í Lengjubikarnum í dag.

Lestu um leikinn: Þór 0 - 2 Fylkir
Árbæingar vonuðust til þess að Ragnar Bragi myndi mögulega ná lokasprettinum í sumar en líkurnar á því að hann spili minnkuðu þegar í ljós kom að mótinu lýkur viku fyrr í ár en það hefur gert síðustu ár.
Ragnar Bragi er fæddur árið 1994. Hann er miðjumaður sem hefur spilað allan sinn feril á Íslandi með Fylki, fyrir utan tímabilið 2017 er hann var hjá Víkingi. Hann var á sínum tíma á mála hjá Kaiserslautern í Þýskalandi og lék með U19 liði félagsins.
Athugasemdir