Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
banner
   fös 17. apríl 2026 14:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hin hliðin - Bryndís Eiríksdóttir (Valur)
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Frábær í klefanum.
Frábær í klefanum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þessar þrjár fá að koma í mat.
Þessar þrjár fá að koma í mat.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrirmyndirnar, Margrét Lára og Dóra María.
Fyrirmyndirnar, Margrét Lára og Dóra María.
Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir
Óþolandi.
Óþolandi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sú fyndnasta.
Sú fyndnasta.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Væri til í Ísfold á Hlíðarenda.
Væri til í Ísfold á Hlíðarenda.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bryndís er varnarmaður sem uppalin er hjá Víkingi en hefur verið hjá Val frá árinu 2020. Hún hefur spilað með KH, HK, Þór/KA og Val í meistaraflokki.

Hún á að baki þrjá leiki fyrir yngri landsliðin og á síðasta tímabili spilaði hún 20 leiki í Bestu deildinni. Í dag sýnir Bryndís á sér hina hliðina.

Fullt nafn: Bryndís Eiríksdóttir

Gælunafn: Bryn

Aldur: 20 ára

Hjúskaparstaða: Lausu

Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: Það var bikarleikur árið 2021 með KH, varaliði Vals. Allt liðið var að spila sinn fyrsta meistaraflokksleik. Minnisstæðast er að leikurinn fór í framlengingu og við skoruðum sjálfsmark á síðustu mínútunni og töpuðum 2-1.

Uppáhalds drykkur: Það jafnast ekkert á við ískalda nýmjólk

Uppáhalds matsölustaður: Austur Indiafélagið

Uppáhalds tölvuleikur: Man að Tetris var góður í den

Áttu hlutabréf eða rafmynt: Nei

Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Heimsókn

Uppáhalds tónlistarmaður: Una Torfa

Uppáhalds hlaðvarp: Komið gott! Ólöf Skafta og Kristín Gunnars eru kostulegar

Uppáhalds samfélagsmiðill: Snapchat í tölvu

Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: Canvas

Fyndnasti Íslendingurinn: Gyða Sól

Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: „jee algjör snilld!"

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Breiðabliki

Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Lina Magull í Inter Milan

Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Jóhann Kristinn og Matti, að öðrum ólöstuðum

Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Lið FHL eins og það leggur sig, þá sérstaklega Aida Kardovic.

Hver var fyrirmyndin þín í­ æsku: Dóra María og Margrét Lára

Sætasti sigurinn: Vann Örnu og FH þrisvar á sama tímabilinu fyrir 2 árum. Hafði ansi gaman af því

Mestu vonbrigðin: Tímabilið í fyrra var vonbrigði en á sama tíma mjög lærdómsríkt

Uppáhalds lið í enska: Arsenal

Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Ísfold Marý Sigtryggsdóttir

Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Arnfríður Auður Arnarsdóttir

Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Hvar á ég að byrja

Fallegasta fótboltakonan á Íslandi: Kimberley Dóra

Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Marta

Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: Ég væri til í að fá vítaspyrnu í hvert skipti sem dómarinn kallar leikmenn með nafni

Uppáhalds staður á Íslandi: Saunan í Lágafellslaug í góðum félagsskap

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Ég heyrði dómarann einu sinni prumpa í miðjum leik

Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Nei alls ekki

Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: Já, hef áhuga á flestum íþróttum, en fylgist sérstaklega með frjálsum og gönguskíðum

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Phantom

Í hverju varstu/ertu lélegastur í­ skóla: Enska hefur alltaf reynst mér ofviða

Vandræðalegasta augnablik: Að æla yfir mig alla í 18 manna flugvél á leiðinni í leik var algjör lágpunktur

Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: Örnu, Hlín og Möllu, ekki spurning

Bestur/best í klefanum og af hverju: Lillý Rut sér til þess að öllum líði vel í klefanum

Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Ég myndi senda Ásu og Auði í Bannað að hlæja, þær myndu standa sig eins og hetjur.

Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Frændi minn er með þrjár geirvörtur

Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Margrét Brynja kemur mér á óvart í hvert skipti sem ég hitti hana. Hún er uppfull af allskyns misgáfulegum fróðleik og býður gestum og gangandi upp á döðlur í klefanum.

Hverju laugstu síðast: Ég lýg yfirleitt ekki

Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Upphitun er helvíti leiðinleg

Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Myndi spyrja Albert Einstein spjörunum úr

Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: Allir á völlinn og áfram Valur!
Slapp
banner
banner
banner